Trúnaðaryfirlýsing

Gagnasöfnun
Þegar þú notar þennan vef verða til upplýsingar um heimsóknina. Safír miðlar þeim ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.
Vafrakökur
Vafrakökur (e. cookies) eru notaðar til að telja heimsóknir á vefinn og til að bera kennsl á fyrri notendur. Safír notar vafrakökur sparlega og af ábyrgð. Notendur geta sjálfir stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim alfarið.
Safír notar ýmis greiningartól til vefmælinga. Í hvert sinn sem vefurinn er heimsóttur eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning heimsóknar, leitarorð sem notuð eru til að finna vefinn, frá hvaða vef er komið og gerð bæði vafra og stýrikerfis þess sem heimsækir vefinn. Upplýsingarnar sem safnað er eru notaðar til að þróa og bæta vefinn svo hann verði aðgengilegri og þægilegri í notkun. Engum öðrum upplýsingum um hverja komu er safnað. Upplýsingarnar eru ekki tengdar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.
SSL skilríki
Vefurinn notar svokölluð SSL skilríki. Það þýðir að öll samskipti fara fram yfir dulritað burðarlag sem gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.
SSL skilríki koma í veg fyrir það að þriðji aðili komist yfir gögn, s.s. lykilorð, sem send eru í gegnum vefinn. Upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara eru dulkóðaðar með SSL skilríkjunum. Þannig skila gögnin sem flutt eru á milli sér á öruggan og réttan máta.
Skráðir notendur
Notendur geta óskað eftir upplýsingum frá Safír í gegnum þennan vef með því að gefa upp nafn og netfang. Netföngin eru vistuð hjá Safír og eru einungis vistuð í þeim tilgangi að senda út upplýsingar um framgang verkefnisins og svara þeim fyrirspurnum sem berast í gegnum vefinn.
Aðrir vefir
Reglur Safírs um öryggi notenda gilda ekki á vefjum utan vefja Safírs. Aðrir vefir sem vísað er í af vef Safírs eru utan ábyrgðar Safírs.
Hægt er að hafa samband á kynning@safir.is til að gera athugasemdir eða fá frekari upplýsingar.
Til baka